UM FOSSRAF
Fossraf ehf er samruni tveggja fyrirtækja, Raftak og Rafsel sem á aldamótaárinu eiga að baki um 22 ára reynslu. Fyrirtækið er umsvifamikið á sviði rafverktöku en einnig rekur það raftækjaverslun og viðgerðarþjónustu á heimilistækjum. Fastur kjarni starfsmanna er um 20 manns sem er stórt á landsmælikvarða.
Framkvæmdarstjóri er Birkir Pálsson og er hann jafnframt hluthafi. Aðrir hluthafar eru Haraldur Sigurmundsson og Kristinn Ásmundsson og starfa þeir einnig hjá fyrirtækinu.

Fossraf ehf er fyrst og fremst þjónustufyrirtæki því um framleiðslu á vörum er ekki að ræða. Þjónusta við fyrirtæki er kjölfestan í rekstri fyrirtækisins, en einnig er mikið unnið fyrir einstaklinga. Á Selfossi er mikið iðnaðar og þjónustusamfélag. Þar hefur nálægðin við miklar sumarhúsabyggðir sitt að segja og einnig hefur mikið verið byggt af nýju íbúðarhúsnæði undanfarin ár, eða með því mesta sem gerist utan höfuðborgarsvæðisins. Virkjanir Landsvirkjunar hafa alltaf dregið til sín menn í ýmis verkefni stór og smá. Vinna í sveitum hefur breyst í gegnum árin því með rúllutækninni hafa súgþurrkunarkerfi og heydreifikerfi nánast alveg dottið út.
Það svæði sem heyrir helst undir þjónustusvæði Fossraf er öll Árnessýsla, allt frá Kambabrún að Þjórsá í austri. Einnig getur fyrirtækið tekið að sér verkefni hvar sem er á landinu, því löggilding þess er ekki svæðisbundin eins og áður var. Helstu þéttbýliskjarnar þar sem fyrirtækið þjónustar einstaklinga og fyrirtæki eru Eyrarbakki, Flúðir, Hveragerði, Laugarvatn, Stokkseyri og Selfoss en þar hefur fyrirtækið aðsetur sitt. Einnig hefur fyrirtækið tekið að sér verkefni á höfuðborgarsvæðinu allt frá einbýlishúsum upp í stórt lagerhúsnæði Prentsmiðjunnar Odda. Meðal fyrirtækja og stofnana sem Fossraf ehf þjónustar og hefur gert um árabil eru SS Afurðir, Fangelsið Litla Hrauni, Flúðasveppir, Límtré, Orkuveita Reykjavíkur, Mannvirkjadeild Landsvirkjunar og svo mætti lengi telja.

Rafverktakar vinna eftir ákveðnum reglum en þær nefnast tæknilegir tengiskilmálar og eru gefnar út af rafveitum. Um 10% af öllum verkum sem rafverktakar tilkynna að þeir hafi lokið eru skoðuð af svokölluðum skoðunarstofum.

Það er því ákaflega mikilvægt að láta aðeins löggilta rafverktaka vinna verkin.

Eyrarvegi 21 - sími: 480 3700 - netfang: fossraf@fossraf.is - fax: 480 3704